09september

Er að taka mér pásu í lærdómnum :)

Já það er sunnudagur og ég á að skila stærðfræðiskilaverkefni núna fyrir klukkan 18:00 í dag, er komin langleiðina með þau.... en er stopp í einu dæmi. Vonandi fatta ég það þegar ég er búin að blogga. :) Ég og Nína ætlum að elda okkur kjúkling í kvöld, mamma hennar kaf henni fullt af  kjúklingum þannig við ákváðum að elda mat í þetta skipti. Eins og sumir vita þá er kjúklingur BESTI maturinn minn þannig mmm hlakka til.

Annars gengur þetta bara svona ágætlega í stærðfræðinni, við erum 5 manna hópur sem lærum eginlega alltaf saman þannig við hjálpumst af að komast í gegnum þessi dæmi. Ég kæmist ekki í gegnum þetta nema gera dæmin í svona hópavinnu,  úff vorkenni þeim sem eru bara einir að vinna verkefnin. Ég væri orðin löngu sköllótt ef við værum ekki að vinna þetta saman. Fyrsta einkunin mín var fyrir ofan meðaltal, og svo næsta var það sama og meðaltalið þannig ég er bara nokkuð sátt. Við erum 11 í stærðfræðinni, þannig þetta er alveg þéttur hópur. Eitt sem ég er frekar óvön í sambandi við kennsluna er það þegar ég spyr kennaranum að einhverju þá svarar hann  með spurningu á móti..... þannig maður á að fatta þetta sjálfur og þar af leiðandi man maður það betur. En stundum fattar maður ekki hintið sem kennarinn er að gefa manni og þá er maður frekar illa staddur :S Vá hvað ég er að nota "maður" mikið í þessu bloggi!

Andrés Ívar á afmæli í dag, og ég sendi enga afmælisgjöf til hans..... ég er ekki að standa mig sem frænka :S Ég bjalla í systur mína í kvöld!

Fór í pool á föstudaginn með Andra og Inga og váá hvað það var gaman. Sjitt hvað hepnin var mikið með mér. Það var geggjað gaman að fara aðeins og gera eitthvað annað.

Ætla að fara að halda áfram í stærðfræðinni!
Bless bless
09. september 2007 klukkan 09:56
Valdís Lilja Andrésdóttir
6 athugasemdir
31ágúst

Jæjæ ný færsla! (en stutt)!

Góðan og blessaðan daginn, ég er byrjuð í háskólanum og líkar bara svona nokkuð vel við mig. Finnst mjög gaman að vera í þessum skóla og ógeðslega gaman að hafa Möggu þarna líka en er stundum að velta því fyrir mér hvort þetta er það sem ég virkilega vill læra. Gengur annars bara vel í stærðfræðinni...... tekur grííííðarlega á þolinmæðina, er stundum að bardúsa í einu dæmi í c.a. 4-5 tíma og get svo ekki klárað það. Erum bara með dæma hefti sem við fáum og eigum svo bara að leysa þau, engin bók til að styðjast við og engin svör. Maður er greinilega kominn í Háskóla. En ég er búin að vera alveg þokkalega dugleg þó ég segi sjálf frá, mæti alltaf klukkan 8 í skólann og læri annað hvort til 4, 6 eða 9 eftir því hvað ég á eftir að gera mikið og hvort ég geti haldið áfram. Það á alltaf að skila skilaverkefni á sunnudögum klukkan 18:00, sem þýðir það að maður er lærandi alla helgina fram að sex á sunnudögum. Tek þá mánudagana aðeins svona rólegri, allaveganna er planið þannig núna. Æ já verð að fara sofa núna...... er annars alveg að fíla mig í botn hérna í rvk. Hitti hana Friðrikku mína og Önnu um daginn og var það alveg fáránlega gaman. Stelpur verðum að taka smá svona IHS hitting! Hvernig væri að spila IHS lagið og taka sundtökin upp á borðum ha? 
Ingi Hrafn er búin að vera mjög duglegur að bjarga mér hérna í rvk, sína mér hvar allt er og kenna mér svona grundvallaratriði strætóinn og svona.
En já svo lánaði Rakel, sem er með mér í stærðfræði, mér gömlufartölvuna sína, algjör snilld, þannig ég er í tölvusambandi heima :) Olafía er konan sem leigir mér herbergið og er hún búin að géfa mér hillur og skrifborðsstól, og lítur herbergið mitt bara nokkuð vel út núna...... meðað við fyrstu vikuna var ég á vindsæng og hillurnar mínar voru pappakassar en núna er þetta allt annað. Líkar vel við alla krakkan í íbúðinni, Nína er stelpa sem er voða fín, við og erum við búnar að vera læra saman hérna heima á kvöldin og svona..... borða smá óhollustu líka en það fer allt þegar ég byrja á hlaupunum hehe!!! hvenær svo sem það gerist!!!.......En já allir tilbúnir að hjálpa, er alveg hæst ánægð með íslendinga núna :D Takk æðislega fyrir allt fólk :)
31. ágúst 2007 klukkan 22:53
Valdís Lilja Andrésdóttir
4 athugasemdir
10ágúst

Hvað er að gerast um helgina?

Jæja þá er háskólinn að byrja 17. ágúst, og hlakka ég gríðarelga til. Þetta verður áræðanlega mjög erfitt en samt líka spennandi og skemmtilegt. Var aðeins að rifja hana upp um daginn.... og vá hvað það var gaman.

Verslunarmannahelgin var hreinasta snilld! Dansaði af mér rassgatið sjitt hvað það var gaman. Skemmti mér alveg konunglega :D

Karólína, Baddý og Andrea takk kærlega fyrir gistinguna, pizzuna og bara allt :*

Hljóp um daginn 10,7 km á 58 mín og er ég mjög ánægð með það, bætti mig :)


Mjólkurstöðin: Alltaf gríðarlega gaman þar :) og hér fái þið aðeins að fá brot af því hvað við bröllum þar… tek það framm að þetta er allt sami dagurinn!!

Ég og Bylgja ákváðum að sprauta á Anton með vatnslöngunni. Við vorum búin að skipuleggja það að ég ætti biðja Anton um útvarpið sitt, og svo myndi Bylgja sprauta á hann (Því útvarpið bilar kannski ef vatn fer á það). Allt í góðu með það, ég fer til Antons og spyr hvort ég mætti ekki fá aðeins útvarpið hans lánað……. Haldiði ekki að hún Bylgja hafi svo bara SPRAUTAÐ Á MIG!!!! Hún og Anton voru þá búin að skipuleggja það! Ég var nátrúlega svooo óviðbúin að það hálfa væri nóg og varð alveg gegnblaut, Anton hljóp og lokaði hurðinni þannig ég var þarna bara komst ekki neitt á meðan Bylgja sprautar og sprautar á mig! Allt rennandi blaut….. Þannig ég var berrössuð í vinnufötunum þennan vinnudaginn og var það frekar kallt, sérstaklega inn á kæli. :S brrrrr
Svo eftir þennan atburð ákáðum við, að við þurftum nú að gera eitthvað við Frey!! Ég, Bylgja og Anton vorum alveg ótrúlega óþolandi þennan vinnudaginn, en já allaveganna þá plöstuðum við bílinn hans, alveg ógeðslega vel, hann var alveg pakkaður inn, og svo skrifaði ég á plastið: Til hamingju með nýja bílinn! hehehe….. hann var einmitt að kaupa sér þennan bíl fyrir stuttu. Frekar pirrandi að koma þreyttur eftir langan vinnudag og þurfa svo eitthvað að baksa við það að taka plast af bílnum sínum híhí samt svooo fyndið JSvo gerðum við annan grikk við hann Garðar greyið, hann einmitt kom með Snikkers í vinnuna og geymdi það inn á kæli, svo þegar hann fór frá þá tókum við það og földum það upp á ljósið inn á kælinum..... ég þurfti að nota lyftarann til að koma því þangað upp. Frekar hátt uppi!! Greyið strákurinn var búin að leita og leita en við sögðum ekki neitt, ég veit kvikindi. Hringdum svo í besta vin Garðars og báðum hann um að senda sms til Garðars: mmm Snikkers! Og ekkert meira, hann Garðar skildi ekki neitt í neinu. Svo þegar vinnudagurinn var búin ætlaði hann að fara hjóla heim.... þá vorum við Bylgja og Anton búin að plasta hjólið hans........ æ hann fékk soldið að kenna á því þennan dag! En honum þotti þetta nú bara fyndið, sérstaklega þegar hann fékk Snikkersið sitt aftur þegar hann mætti í vinnuna nokkrum dögum eftir.

Fótboltaleikur á sunnudaginn.... á Höfn og ég er einhvernveginn ekki alveg að nenna að fara! En ég held nú samt að ég fari, það er alltaf gaman að spila með Þristinum. Var á æfingu í gær og VÁÁ hvað hún var alveg ógeðlsega leiðinleg, ég hef bara aldrei gengi jafn illa! Völlurinn var nátrúlega líka alveg hrikalega slæmur.... svo slæmur á þegar maður horfði yfir völlinn þá sáust ekki skórnir á leikmönnunum!! Svo voru svona gras þúfur.... æ þetta var bara ömurlegasta fótbolta æfing sem ég hef farið á.


Þetta er síðasta helgin mín hérna á Austurlandi... og ég var að spá er eitthvað um að vera núna um helgina?
10. ágúst 2007 klukkan 18:07
Valdís Lilja Andrésdóttir
11 athugasemdir
22júlí

VERSLUNARMANNA HELGI!

Jess, stelpan er komin með íbúð, og er gríðarlega heppin. Var þetta 5 herbergja íbúð og leigir konan út eitt og eitt herbergi sér. Fékk ég eitt herbergi og er aðgangur að öllu í íbúðinni. Allt snirtilegt þarna inni og frekar nýlegt, Lovísa verður með eitt herbergi þarna og er ég ofsalega ánægð með það. Hlakka til að fara til rvk og byrja að lifa í stórborginni! Veit ekki alveg hvernig ég á eftir að höndla þetta en vona að það gangi allaveganna upp!

Er að vinna í mjólkurstöðinni og gengur það bara svona glimrandi vel. Alltaf gaman í vinnunni, er að vinna alla laugardaga framm að skóla. Þannig ég eigi einhvern pening.... það er svona aðeins betra ;)

Var á Lunga í gær, og það var bara ekkert svo skemmtilegt!!! Ég er bara EKKI að fíla svona teknó! allt í lagi að hafa það svona inn á milli en
JESÚSSS minn góður, ég var orðin alveg frekar einhæf í dönsum því það var nú ekki mikið hægt að vera fjölbreyttur ef takturinn er alltaf sá sami! Systir mín kom einmitt á Lunga og var hún alveg að bjarga þessu kvöldi, alltaf gaman að dansa við þig sæta mín ;*

Sandra Sif er komin heim og var ég að hitta hana áðan. Jii hvað ég var búin að sakna hennar mikið. Alltaf gaman að fá sína bestu vinkonu heim :)

Ætla að fara á Norðfjörð um verslunarmanna helgina og gista hjá Karólínu og vinkonum hennar! Það verður bara gaman. Hvar verðið þið um Verslunarmannahelgina?
22. júlí 2007 klukkan 18:30
Valdís Lilja Andrésdóttir
7 athugasemdir
06júlí

Sárvanntar íbúð í Reykjavík!

Búin að borga skólagjöldin í HR sem er 128.000 kr sem er alveg nóg.... sérstaklega þegar maður er ekki búin að vinna í hálft ár! Bara búin að vera í íþróttalýðháskóla í Dk og leika sér. Þannig ég er að koma suður, en það er bara eitt vandamál.... mig sárvanntar íbúð á góðu verði því ég á alls ekki nóg af penningum núna!

Justin Timberlake tónleikarnir voru nátrúlega bara HREIN snilld... 105.000 manns voru á tónleikunum og við erum að tala um það að það er einn þriðji af Íslendingum! Þvílík upplifun að sjá svona mikið af fólki og stefningin þarna er ólýsanleg! Jóhanna takk æðislega fyrir frábæra Danmerkurferð og ég ætla að koma til Norðfjarðar á næstunni að heimsækja þig! Ylmvatnið þitt er heima hjá Karólínu sem er að leigja þarna á Neskaupstað.

Friðrikka mín, mér líst gríðarlega vel á það að ég er að koma suður.... er strax byrjuð að sakna þín. Voða skrítið er búin að búa með þér í hálft ár og svo bara allt í einu er ég ekkert að hitta þig á hverjum degi! En ég ætla að vera dugleg að halda kontakt við þig... ætluðum við ekki líka að hafa svona fastan dag sem við stelpurnar frá IHS ætlum að koma saman og hafa svona wellness, spjall, mat, nammi og svona?

Grillmatur í kvöld mmmmmm, hlakka til :D

Magga er komin til Egilsstaða og við ætlum að bralla eitthvað saman núna í dag. Hver veit að við kíkjum kannski í Valaskjálf, og mætum í stuttu pilsi og leggings.... því stelpur sem mæta í stuttu pilsi fá frítt inn og frían drykk! Mjög góður díll!

Er að fara vinna á morgun, fer svo beint frá vinnunni minni norður í sumarbústað með heitapotti og alles með allri fjölskyldunni! Voða huggó

06. júlí 2007 klukkan 14:49
Valdís Lilja Andrésdóttir
3 athugasemdir
18júní

HLAKKA TIL AD KOMA HEIM! :)

jæja núna er bara stutt eftir, bara ein vika! Tad verdur vodalega skrítid ad segja bless vid 90 manns sem madur er búin ad búa med í hálft ár. Ég vona bara ad madur verdur duglegur ad halda sambandi vid krakkana hérna, eins og tid vitid tá er ég nú frekar léleg i tví en ég ætla nú ad reyna mitt besta. Tad eru 4 krakkar sem ætla ad koma ad heimsækja mig til Íslands. Petur og Anders ætla ad koma í sumar og svo ætlar Laurids og Jane herbergisfélaginn minn líka ad koma einhvern tíman hún er búin ad lofa mér tví. Svo er nátrúlega potttétt ad ég ætla á elevemøde næsta ár! Tá hittir madur alla aftur, tad verdur ógedslega gaman.

Myndavélinni minni stolid!!! Vorum á bordi nidrí stofu og svo vorum vid stelpurnar á fullu ad taka myndir og svona, lagdi myndavelina á bordid fór svo ørstutt frá á klósetti tegar ég kom til bara ta var hún horfin. Ótolandi!!! Ég spurdist fyrir og tók svo tetta upp á einum fundinum hvort einhver hafi séd myndavelina mína, bjó til auglýsingu en eingin vissi neitt :( 
Bara ógedslega leidinlegt, ég er svooo óheppin, tetta var útskriftargjøfin mín frá fjølskyldunni minni. Ég bara bidst fyrirgefnigar á tví ad hafa ekki passad nógu vel upp á hana. :( Er mjøg leid yfir tessu, en sem betur fer var eg ný búin ad tæma myndavelina mina.

Hæ hó og jibbí jei og jibbííííí jei tad er komin 17. júní¨
Já vid stelpurnar fórum á kaffi hús í gær, ég, Fridrikka, Anna, Dagný, Malou og Cecile. Tad var ógedslega gaman, ég fékk einhverja stjørnu máltid (sjávarréttamáltid) tad var lax, túnfiskur, reykjur og einhver annar réttur. Ógedslega gott, fengum okkur svo brownis og rjóma og kaffi í eftirrétt.

Bakadi ógedslega góda brúkaupskøku, hún var med kókos og súkkuladi botni, tar á eftir komu fersk jardaber, svo rjómi med jardaberjasultu í svo kom bántí nammid skorid nidur og svo annar botn og svo jardaberja rjóminn og svo súkkuladi pløtur ofaná og svo marsípan ofan á! Tetta var bara gód kaka, ég ætla ad setja myndir af henni inn seinna.

Er búin ad kaupa mida á Justin Timberlake og hann kostadi 5300 kr, í sæta plássi! Plandi er tannig vid tøkum lestina klukkan 12 og førum svo á tónleikana um kvøldid, hittum Jóhønnu og vinkonu hennar fyrir utan. Gisti svo hjá frænku Fridrikku fyrstu nóttina. Næstu tvær nætur verdum vid Jóhanna á Hosteli. Vid ætlum ad versla og hafa tad voda gaman.

Var ad taka tátt í trítraut, tad er ad segja synda 400 metra, hjóla 18 km og hlaupa 4,2 km nema tad ad ég er ekki med neitt hjól tannig ég syndi bara og hljóp svo strax á eftir. Tetta tók mig 31:30, er ekki alveg nógu ánægd med tíman, var svo helvíti lengi ad synda, var alltaf ad gleypa vatn og klessa á fólk...... tad var mjøg svo skrítid ad hlaupa í sunbolnum innan undir hlaupa føtunum mínum, tví madur var ekkert ad eyda tímanum ad  skipta. En já tá er tetta afstadid! Tegar ég kem heim ætla ég sko ad reyna ad halda mér í tessu formi sem ég er núna, Steinar ætlar einmitt ad hljálpa mér med tad. Tví hann ætlar ad vera einkatjálfarinn minn tegar ég kem heim! og ætla ég ad reyna standa mig eins vel og ég get.

Er kominn inn í HR!! Ég vodalega ánægd med tad, er samt ekki 100 % viss um hvad ég ætla ad gera..... ætla ad bída med ad stadfesta námid tangad til ég kem heim! Já Magga mín tessi helgi sem tú varst hjá mér var bara ædisleg ótrúlega gaman ad fá tig. Allar stelpurnar hérna líka søgdu vid mig æ hvad vinkona tín er ædisleg, ótrúlega skemmtileg stelpa. Tad var mjøg gaman ad heyra tad, ég skiladi mjøg gódri kvedju til teirra frá tér og teir bidja sømuleidis ad heilsa :D

En já er bara alveg ad fara koma heim, hlakka til ad sjá vinkonu mínar, vini mína og fjølskylduna mína :) veit samt ekki alveg hvenær ég kem med til ad sjá hana Nønnu mína, vona ad tad verdi ekki langt tangad til. Sakna ykkar allra, verdur mjøg gaman ad geta fløjid beint heim til Egilsstada!!

Kram fra Valdís
18. júní 2007 klukkan 08:05
Valdís Lilja Andrésdóttir
4 athugasemdir
13júní

Er ad koma heim 26. júní, beint til Egilsstada !!!!!

Hæsa hæsa, ég er ekki búin ad get komist í tølvu..... jam léleg afsøkun en hun er nú samt sønn. Tad er bara búid ad vera GEGGJAD vedur hérna, búin ad vera liggja á strøndinni og hafa tad grídarlega gott. Tad er svona tónlistarkvøld í kvøld og stelpan ætlar ad syngja Itchy palms og spila Rómeo og Júlía í nýrri útgáfu á flautu! Ég bara hlakka grídarlega til ad gera tad, er voda spennt. Já ég og Fridrikka ætlum ad kaupa tónleikarmida á Justin Timberlake!!! bara geggjad tækifæri, skólinn hérna búin 23 um hádegi og vid skellum okkur bara beint til Køben og á tónleika!!!! Jams tetta verdur sko gert.

En já er búin í tessu svo kallada BUFF TESTI, tá eru gerdar eins margar endurtekningar eins og tú getur á EINNI mínútu, t.d. hvad margar Armbeygjur tú getur tekid á einni mínútu, magaæfingar, bakæfingar, upptog, sipp, hopp yfir línu, hlaup á milli keila, englahopp, hlaupa i dýnu og eitthvad fleira man ekki allt en allaveganna er ég hæst fékk ég 620 stig í allt. Æ tad var bara gaman ad vinna strákana. Grobb jam veit en ég er bara helvíti stolt af mér:
gerdi 43 armbeyjur á tánum, hoppadi 205 hopp yfir línu, sippadi 170, tetta var tad helsta sem ég man.

BERGLIND Á AFMÆLI Í DAG!!!!! TIL HAMINGJU MED TAD SÆTA SÆTA SYSTIR MÍN.... tú færd gjøfina frá mér tegar ég kem heim, finnst svo stutt tangad til ég kem tannig ég ákvad ad bída med tad ad senda hana. En til hamingju aftur Berglind
13. júní 2007 klukkan 15:09
Valdís Lilja Andrésdóttir
6 athugasemdir
27maí

Komnar FULLT AF MYNDUM inn á http://wwww.valdislilja.myphotoalbum.com

Já ég er búin ad kaupa mér nike hlaupabuxur....ég hélt ad ég myndi ALDREI kaupa mér svona nídraungar hlaupabuxur, en madur lítur samt alveg vodalega próó út! Sem er bara gaman. 

Margrét Rán er ad koma á føstudaginn til mín! Tad verdur voda mikid prógram tessa helgina tví tetta er gesta helgi. Allir krakkarnir i IHS dansa dans, svo verdur tónlistaratridi (sem ég er í ad spila á tverflautuna og hristidót) og gott ad borda og svona. Svo verdur líka farid nidrí bæinn og skemmta sér pínu. Hlakka grídarlega til ad fá hana Møggu mína, hún kemur alltaf á réttum tímapunktum. Man ótrlúlega vel eftir tví tegar ég var ad keppa í ungfru ísland tá hittumst vid, ég og Magga og tad bjargadi mér alveg, svo gott ad tala vid hana um allt! Tví tótt ad tad sé mjøg gaman ad ferdast og kynnast nýju og svona tá er samt alveg ótrúlega gott og naudsynlegt ad eiga trausta og góda vini heima. 

Stærdfrædingur eda kokkur, Akureyrir eda í Reykjavík!!! Ég er ordin alveg kex ruglid í tessu!! Sandra Sif mín, ég veit ad vid vorum búnar ad ákeda ad leigja saman í rvk.... en tá vissi ég ekki ad ég gæti lært kokkinn á Akureyri! Mig langar rosalega ad vera á bádum stødum, Reykjavík alveg heillandi líka. Veit ekkert í minn haus!!!

Fór á fótboltaleik med Jane herbergisfélaganum mínum um daginn. Kærastinn hennar var ad spila, tad var alveg ógedslega gaman! fullt af myndalegum fótboltastrákum hehe ;)

Er ad fara syngja Ichty palms med Heru næstu helgi, hlakka til en samt stressud!

Er búid ad vera mjøg gott vedur, var ad spila fótbolta um daginn bara á ítróttatopp og stuttbuxum. Ég og Jane vorum sko ad vørka tanid!!

Gangurinn minn grilludum úti um daginn, bordadi ALLT OF MIKID. 4 pylsur + braud + medlæti + svinakótilettu + kartøflusalatt+ tvø kók!!!! já ég veit ekki alveg hvad kom yfir mig. Tetta var samt voda gaman, vid fórum svo í snú snú og frispí og botsja eftir matinn. Ég gat samt ekki sofid tví mér var svo illt í maganum, ekki nóg med tad ta var trek æfing um morguninn og vid áttum ad hlaupa 6,7 km og ég ældi (bara pínku) á leidinni. Tá ákvád ég ad taka mig á og hætt ad borda svona yfir mig! Tetta er nátrúlega ekki edlilegt! Bara heimska ad geta ekki hætt tessu áti!!!

27. maí 2007 klukkan 12:30
Valdís Lilja Andrésdóttir
11 athugasemdir
21maí

Karólína í heimsókn :D

Jams hún systir mín kom til mín og heimsótti mig i sídustu viku. Kom á mánudagskvøldi og fór á laugardagsmorgni. Ferdin byrjadi nú ekki vel hjá Karó tví hún var med ælupest alla ferdina hingad til Sønderborg en svo tegar hún vær mætt hingad fór henni batnandi. Á medan hún var hérna versludum vid alveg ágætlega mikid, allaveganna fór slatti af pening af kortinu mínu hehe ;) en hvada hvada madur lifur nú ekki nema einu sinni.

Já ég tók systur mína smá sýningar túr um skólan og svo fór ég ad æfa lagid sem vid erum ad spila í hljómsveitinni. Já er mikid ad spá í ad fara aftur ad læra á tverflautu, er alveg ógedslega gaman ad spila á hana núna..... held samt ad tad sé líka af tví ég er í hljómsveit, ekki bara eitthvad ein ad spila. Kemur ótrlúlega flott út, er ad spila vidlag med stelpu sem syngur líka svo tek ég líka smá sóló :D ógedslega gaman :D
Já eftir ad hafa verid ad spila soldid fórum vid systurnar bara upp í herbergi ad sofa.

Vøknudum alveg grídarferskar á tridjudeginum og fórum í tónlistartíma og svo í bæinn og versla og svo var farid í earobic og úff hvad madur svitnadi tar.

Jamm svo kom midvikudagur og tá var sko farid í tennis og svo Í BÆINN um kvøldid (nóttina)! Vid dønsudum og dønsudum, ég var samt nýbúin ad segja vid Karó ad danskir strákar dansa svooo vel nei nei haldidi ekki ad lélagasti strákurinn komi til Karólinu og bjódi henni upp í dans..... ekki alveg nógu gott!! En svo komu fullt af ødrum og dønsudu vid hana, sem voru gódir dansarar.... eda var tad ekki Karó?? Fórum svo og fengum okkur ad borda, Kebab! tad er matur sem ég ætla ekki ad kaupa mér aftur óóójjjj barasta. Vid keyptum kjúklinga kebab og svo tegar vid vorum búnar ad borda hálfan tá kíkti ég adeins á kjúklinginn sem var inn í braudinu! Hefdi alveg viljad ad ég hafi gert tad strax tví hann var eintá med fidrid á!! ój ég misti matalistina á stadnum. En já tad verdur bara pizza næst!

Fimtudagur byrjadi á hlaupum.... vid ákvádum ad fara til Flensborgar, og turfum ad hlaupa til ad ná strætóinum. Ferdin gekk bara voda vel, skodum margar kirkjur, bordum ís og fórum út ad borda á MJØG flottum veitingarstad, ég fékk mér Fille og Karó kalkún og var hún entá eitthvad skrítin í maganum tannig Valdís Lilja Andrésdóttir bordadi hennar mat líka.... stundum skil ég ekki alveg afhverju ég get bordad svona mikid, tetta er alveg óskiljanlegt! En já svo tegar vid (ég) vorum búnar ad borda fórum vid í strætóin aftur hlaupandi takk fyrir og fórum til Rønshoved. Sem er gamli skólinn hennar Karó og skodum hann og fórum svo heim. Tessi dagur var voda skemmtilegur.

Á føstudeginum voru ítróttir hjá mér og  hljóp stelpan 6,7 km á medan var Karó í bænum ad versla ótrlúlega krútleg føt handa Jóhønnu og Andrési. Fórum svo í tónlistar tíma og svo aftur í bæin ad versla adeins meira. Keypti ég mér alveg geggjadan bol sem er gulur og úr silki ótrulega fínn. En já svo fórum vid (Fridrikka, Karólína og ég) út ad borda á Kínverskum stad, sem er tannig ad allt er hrátt, kjótid og grænmetid og núdlurnar og svona. Tú setur bara allt sem tig langar í á diskinn tinn og færd sósu á allt saman og ferd matinn til steikingarmanns sem steikir tetta. Tetta er held ég svipad og Wokbar Nings. En allaveganna tá smakkadi ég krækkling, sem leit ekki vel út en var alveg ætanlegur svona á endanum tegar ég var búin ad mana mig upp í ad prófa. En já svo var hladbord á ís líka..... váá hvad tad var gott mmmmm valdis og ís eru alveg eitt hehe! En ok svo eftir tessa svaka veislu fórum vid í tívolíid sem var hérna í Sønderborg og tad var bara nátrúlega hrein snilld. Nema fyrir utan eitt, tegar ég settist upp í eitt tækid tá var æla í stólnum sem ég settist í og ég fattadi tad ekkert. Ég setti hendina í tad og fór svo ad klóra mér í nefinu!!! Tannig ég fékk ælu frá EINHVERJUM í ANDLITID! frekar ógedslegt. En ég kalladi á vørdin og fékk ad skipta um sæti. Fórum svo heim ad sofa eftir mjøg skemmtilegan dag. Karólína fór svo heim á Laugardagmorguninn.

Á laugardaginn, svaf ég til 12 og fór svo út ad hlaupa 6,7 km og lyfta pínu. Tad var svona deit fest tetta kvøldid tannig ég fór á 16 deit. Taladi vid hvernig strák í 3 mínútur og var tetta bara ótrúlega skemmtilegt. HvítvínsFlØSKURNAR voru líka ekki lengi ad klárast tetta kvøldid! Bara gaman :)


Sunnudagur: Lág í solbadi frá tví klukkan 10 - 15 og ég er svo brunnin í andlitinu og med alveg geggjad far. Ég tarf ekkert á bíkiníi ad halda lengur, er bara alltaf í einu. Hehehe samt svona frekar gegnsækt. En já spiladi svo strandblak í einn-tvo tíma og fór svo út ad hlaupa 4,2 km. Bordadi voda gódan pasta rétt og fór svo í fótbolta frá 7 til 8. Var alveg búin eftir tennan dag.


Mándagur: Byrjadi á tví ad vakna med hardsperrur í aftanverdu lærinu, en tær voru ekki lengi ad fara. Fórum í stiga hlaup tennan morgun í ítróttum. Dønsudum dans sem vid erum ad æfa okkur fyrir gesta helgina. Fór svo í tennis efti hádegismat og í bæin ad kaupa mér andlitskrem... jams og núna er ég hér!


Verd svo ad fara setja myndirnar inn á, er med alveg FULLT af mydnum. Geri tad næst! Sjáumst eftir mánud ;)


MAGGA sæta sæta er ad koma gesta helgina!!! hlakka sjúklega mikid til ad fá tig sæta, get bara ekki bedid :D

21. maí 2007 klukkan 19:00
Valdís Lilja Andrésdóttir
3 athugasemdir
13maí

Elevemøde fest!

1. Systir mín er ad koma á morgun :)

2. Ætla ad sækja um Kokkin, til vara ef ég kemst ekki inn í HR

3. Tennis er algjør snilld, er mikid ad spá í ad kaupa mér Tennisspada..... verst ad tad eru ekki svo margir á Egilsstødum sem kunna tennis. Tekki bara eina manneskju sem kann tennis og tad er hún Eydís systir Steinars. Langar rosalega ad halda tví vid tad sem ég kann í tennis, Eydís hvernig líst tér á ad vid skreppa nokkru sinnum upp á Vilhjálmsvøll í sumar og spilum tennis?

4. Er bara ad vinna í mjólkurstødinni í sumar, og ætla bara ad vera í einni vinnu :) Ætla eiga mér líf ;) Tad sem ég ætla potttétt ad gera í sumar er: fara í útilegur, road trip, vera dugleg í ræktinni, út ad hlaupa og ætla svo ad vera grídarlega dugleg í sundlauginni til ad verda entá tanadri hehe ;)

5. Tad var elevemøde fest tessa helgina og skemmti ég mér alveg grídarlega vel, í matnum var helsteiktur grís sem smakkadist mjøg vel. Ís lagterta í eftimat og svo var hljómsveit sem kom og spiladi fyrir 400 manns. Ég var gjørsamlega føst á dansgólfinu, mjøg gód hljómsveit.

Kved í bili Valdís

13. maí 2007 klukkan 09:35
Valdís Lilja Andrésdóttir
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Flokkar

Auglýsing

Um mig

Fullt nafn: Valdís Lilja Andrésdóttir

myspace: http://www.myspace.com/valdislilja
msn: valdislilja@hotmail.com
e-mail: valdislilja@gmail.com

Hæð:168
Háralitur:ljós
Augnlitur:gráblá

Metið í kúlu:10,88
Metið í spjóti:31,22
Metið í Kringlukasti: 30,02
Metið í 8 km hlaupi: 42 mín
Metið í 10,7 km hlaupi: 58 mín
Metið í bekkpressu: 57,5 en markmiðið er 60! ætla nefnilega að taka meira en systir mín!!

Könnun

Hvar ertu staddur/stödd?

Klukkan

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...